Tengiliðir farsældar og úrræðalisti

Lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna tóku gildi þann 1. janúar 2022. Meginmarkmið laganna er að skapa umgjörð sem stuðlar að því að börn og foreldrar, sem á þurfa að halda, hafi aðgang að samþættri þjónustu við hæfi án hindrana. 

Í lögunum kemur fram að börn undir 18 ára aldri og fjölskyldur þeirra skuli hafa aðgang að tengilið þjónustu í þágu farsældar barns eftir því sem þörf krefur. Hlutverk tengiliðar er: 

• að hafa hagsmuni barns að leiðarljósi • að rækja hlutverk sitt í samstarfi og samráði við foreldra og barn • að veita upplýsingar um þjónustu í þágu farsældar barns • að aðstoða við að tryggja aðgang að frummati á þörfum barns – eyðublað frá BOFS • að skipuleggja og fylgja eftir samþættingu fyrsta stigs þjónustu í þágu farsældar barns • að koma upplýsingum til sveitarfélags um þörf fyrir tilnefningu málstjóra • að taka þátt í starfi stuðningsteymis eftir því sem við á

  • Þegar barn er við nám í leik-, grunn-, eða framhaldsskóla er tengiliður þjónustu í þágu farsældar barns starfsmaður skólans þar sem barnið er við nám eða leik.   

Áður en tengiliður byrjar að veita þjónustu skal liggja fyrir beiðni foreldra og/eða barns um samþættingu þjónustu.

· Beiðni um samþætta þjónustu (hafnarfjarðar eyðublað) sem þið sækið á Lækinn.

https://hafnarfjordur.workplace.com/work/file_viewer/3667951773429645/?surface=KNOWLEDGE_BASE

· Beiðni um miðlun upplýsingar (hafnarfjarðar eyðublað) sem þið sækið á Lækinn.

https://hafnarfjordur.workplace.com/work/file_viewer/3667952040096285/?surface=KNOWLEDGE_BASE

Hér eru nokkrir gagnlegir tenglar:

· Kynningarmyndband: Samþætting þjónustu í þágu farsældar barna

· Leiðbeiningar um innleiðingu á lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna (Barna- og fjölskyldustofa)

· Samþætting þjónustu í þágu farsældar barna (Barna- og fjölskyldustofa)

· Reglugerð um tengiliði og málstjóra samþættingar þjónustu í þágu farsældar barna

Tengiliðir farsældar:

Stefanía Ólafsdóttir, deildarstjóri stoðþjónustu, stefaniao@vidistadaskoli.is

Guðmundur Björgvin Sigurbjörnsson, deildarstjóri unglingastigs, bjorgvin@vidistadaskoli.is

Elísa Ösp Valgeirsdóttir, deildarstjóri miðstigs, elisa@vidistadaskoli.is

Helga Þórdís Jónsdóttir, deildarstjóri yngsta stigs, helgath@vidistadaskoli.is

Úrræðalisti 


Víðistaðaskóli | Víðistaðatún Hrauntunga 7, 220 Hafnarfjörður
Sími 595 - 5800 | Netfang vidistadaskoli@vidistadaskoli.is