Öryggismyndavélar Víðistaðaskóla
Til foreldra, starfsmanna og nemenda í Víðistaðaskóla
Öryggismyndavélar Víðistaðaskóla
Viðbætur við stafrænar öryggismyndavélar eru nú uppsettar í skólanum. Um er að ræða öryggismyndavélar sem eru staðsettar við innganga og anddyri skólans. Í því felst rafræn vöktun innan skólabyggingarinnar sem er gert í þágu öryggis og í þeim tilgangi að varna því að eigur séu þar skemmdar eða þeim stolið.
Myndefni verður einungis skoðað ef upp koma atvik er varða eignavörslu eða öryggi einstaklinga, s.s. þjófnaður, skemmdarverk eða slys. Heimild til skoðunar er aðgangsstýrð en myndefni er vistað að hámarki í 90 daga og því er eytt að þeim tíma loknum.
Merkingar með viðvörunum um rafræna vöktun hafa þegar verið uppsettar á hinum vöktuðu svæðum.
Vöktunin er útfærð í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Merkingar með viðvörunum um rafræna vöktun eru uppsettar á hinum vöktuðu svæðum.
Til kynningar og nánari fræðslu varðandi eftirlitið sem hér um ræðir skal bent á reglur Hafnarfjarðarkaupstaðar um rafræna vöktun öryggismyndavéla sem taka til þessarar vöktunar:
· Reglur Hafnarfjarðarkaupstaðar um rafræna vöktun öryggismyndavéla.
Einnig er bent á að almennar upplýsingar um rafræna vöktun ásamt leiðbeiningum er að finna í bæklingi á vef persónuverndar þar sem hægt er að fá frekari upplýsingar um viðfangsefnið:
· Leiðbeiningar Persónuverndar um rafræna vöktun.
Efni þetta er einnig kynnt á vef skólans.
Þetta upplýsist hér með.
Með kærri kveðju,
Hrönn Bergþórsdóttir, skólastjóri Víðistaðaskóla
- Eldri færsla
- Nýrri færsla