Seinni bólusetning nemenda í 1.-6. bekk

28.1.2022

Vegna seinni bólusetninga nemenda í 1.-6. bekk 

Þriðjudaginn 1.febrúar er nemendum í 1. – 6. bekk í Víðistaðaskóla boðið að koma í seinni bólusetningu. Ekki verður nein breyting á skóladeginum þar sem hann ber upp á foreldrasamráðsdag. Foreldrar ættu því að hafa ráðrúm til að fara með börnum sínum í bólusetningu þennan dag á tilsettum tíma. Frístundaheimilið verður með venjubundna opnun á bólusetningardegi eins og á foreldrasamráðsdegi allan daginn fyrir þá sem þar eru skráðir og geta nemendur komið þangað fyrir eða eftir bólusetningu. Allar upplýsingar sem varða bólusetninguna koma frá Heilsugæslunni og er foreldrum bent á að leita til hennar ef eitthvað er óljóst varðandi framkvæmd hennar. Upplýsingar um bólusetningar barna m.a. hér https://www.covid.is/bolusetningar og https://www.heilsugaeslan.is/um-hh/frettasafn/stok-frett/2022/01/25/Seinni-bolusetning-skolabarna-i-Laugardalsholl/

Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu hafa ákveðið að skóladegi barna í 1.-6. bekk ljúki fyrr þennan dag eða kl. 11:00. Þessi ákvörðun er tekin í þeirra samráði og með stuðningi menntamálaráðuneytis. Við í Víðistaðaskóla þurfum ekki að loka skólanum þennan dag þar sem þetta er foreldrasamráðsdagur. 

Kær kveðja 

Hrönn Bergþórsdóttir, skólastjóri 

Due to second vaccinations of students in grades 1-6 Tuesday 1st February is the day of vaccination for students in 1. – 6th grade in Víðistaðaskóli. The same day we have meetings with the parents so we don‘t have to finish school at 11 o‘clock. Parents will have the opportunity to take their children for vaccination on that day at an appointed time. The after school programs will be open as usual on the whole day of vaccination because of parents‘ day. All information regarding the vaccination comes from the Health Care (Heilsugæslan) and are parents advised to contact them if anything is unclear regarding its implementation. Links for information about vaccination for children: https://www.covid.is/bolusetningar og https://www.heilsugaeslan.is/um-hh/frettasafn/stok-frett/2022/01/25/Seinni-bolusetning-skolabarna-i-Laugardalsholl/ 

Best regards 

Hrönn Bergþórsdóttir, skólastjóri


Víðistaðaskóli | Víðistaðatún Hrauntunga 7, 220 Hafnarfjörður
Sími 595 - 5800 | Netfang vidistadaskoli@vidistadaskoli.is