Samræmdu könnunarprófi í 9. bekk
Í
samræmdu könnunarprófi í íslensku í 9. bekk sem lagt var fyrir í morgun
komu upp tæknileg vandamál í prófakerfi. Vandinn lýsti sér í því að margir
nemendur áttu erfitt með að komast inn í prófin eða duttu út úr kerfinu áður en
þeir höfðu lokið próftöku. Samkvæmt fyrstu greiningu hafa um 3.500 nemendur af
um 4.200 lokið prófinu en ljóst er að hluti nemenda tók prófið við
ófullnægjandi aðstæður.
Menntamálastofnun ber ábyrgð á framkvæmd samræmdra könnunarprófa í grunnskólum
og harmar þau vandamál sem komu upp við fyrirlögn þeirra. Stofnunin er nú að
greina stöðuna með þjónustuaðila prófakerfisins og vinna að viðeigandi úrlausn.
Þar sem ekki hefur fengist fullnægjandi lausn á þeim vanda sem upp kom í morgun
var nauðsynlegt að endurskoða fyrirlögn prófanna.
Að höfðu samráði við mennta- og menningarmálaráðuneyti hefur verið ákveðið að
fresta samræmdum könnunarprófum í stærðfræði og ensku í þessari viku. Skólum er
gefinn kostur á að leggja öll þrjú samræmdu könnunarprófin fyrir á tveggja
vikna tímabili frá og með næsta mánudegi. Þannig hafi skólar val um hvaða próf
þeir leggja fyrir og hvenær á tímabilinu 15.-26. mars. Allir nemendur innan
sama skóla verða að taka sama próf á sama degi.
Skólar eru beðnir um að senda tilkynningu til Menntamálastofnunar á netfangið prof@mms.is um
hvenær á ofangreindu tímabili skólinn hyggst leggja próf fyrir og í hvaða
námsgrein. Gefnir verða út nýir prófkóðar fyrir nemendur í íslensku.
Virðingarfyllst,
Arnór Guðmundsson, forstjóri Menntamálastofnunar.