Fræðslufundur á föstudagsmorgun

18.2.2015

Vímuvarnafundur fyrir foreldra og kennara barna í 8.bekk verður á föstudagsmorgun kl. 8:00.

Á undanförnum 5 árum hefur sá heimur sem börnin okkar eru að alast upp í, gjörbreyst.Þetta þýðir að þær aðferðir og þau ráð sem uppalendur hafa verið að notast við í uppeldinu eru mörg hver úrelt og virka ekki lengur.
Maritafræðslan býður ykkur á fræðslustund í skólanum ykkar þar sem við munum skoða þessar breytingar saman og skoða hvað uppeldissérfræðingar eru að ráðleggja í uppeldismálum núna.
Fullorðnir fá einnig að sjá ágrip af þeirri fræðslu sem  unglingarnir fengu, sem gerir alla umræðu heima fyrir auðveldari.
Einnig verða sýnd helstu einkenni fíkniefnaneyslu og hvernig er best að bregðast við ef grunur um neyslu kemur upp.

Taktu þátt! 

“Hjálpaðu barninu þínu að taka afstöðu

og að hafa ekki áhuga á vímugjöfum”

Skólastjórnendur


Víðistaðaskóli | Víðistaðatún Hrauntunga 7, 220 Hafnarfjörður
Sími 595 - 5800 | Netfang vidistadaskoli@vidistadaskoli.is