Nemendafélagið stóð sig mjög vel

19.9.2016

Nynemaball-2Vel heppnað og skemmtilegt nýnemaball 8.-10. bekkja var haldið í liðinni viku. "Þetta tókst mjög vel og nemendafélagið sem stóð að skipulagningu ballsins gerði það með stakri prýði" segir Þórunn Þórarinsdóttir verkefnastjóri í Hrauninu. Fjölmenni mætti og ekki annað að sjá en nemendur hafi skemmt sér með miklum ágætum segir Þórunn.
Einar Örn og Yrja sáu um tónlistina á dansgólfinu og eins og sjá má á myndunum var glatt á hjalla á þessu fyrsta balli vetrarins.    

-/sir

Nynemaball-3Nynemaball-4

Nynemaball-6



Víðistaðaskóli | Víðistaðatún Hrauntunga 7, 220 Hafnarfjörður
Sími 595 - 5800 | Netfang vidistadaskoli@vidistadaskoli.is