Með allt á hreinu - miðasala hafin

22.3.2017

Med-allt-á-hreinuNú í nokkrar vikur hafa 10. bekkingar unnið hörðum höndum að uppsetningu á leikþættinum "Með allt á hreinu". Hafa nemendur lagt hart að sér við æfingar og nú styttist í að sýningar hefjist. Frumsýning verður föstudaginn 31. mars kl. 19:30 ( ath. að tímasetning á auglýsingu er ekki rétt ). Önnur og þriðja sýning verður á laugardeginum 1. apríl kl. 14 og kl. 17 og fjórða og fimmta sýning sunnudaginn 2. apríl kl. 14 og 17. Eru allir hvattir til að verða sér út um miða í tíma en miðasala hefur gengið vel. Panta má miða í gegnum netfangið hraunid@hafnarfjordur.is. Verð á miða fyrir fullorðna er 1500 kr. og 500 kr. fyrir börn. 
-/SIR

Víðistaðaskóli | Víðistaðatún Hrauntunga 7, 220 Hafnarfjörður
Sími 595 - 5800 | Netfang vidistadaskoli@vidistadaskoli.is