Jólaskemmtun unglingadeildar

20.12.2016

DSC_7341Jólaball unglingadeildar var haldið hátíðlegt í gær mánudaginn 19. desember. Allir mættu í sína fínasta pússi fyrst á leiksýningar í íþróttahúsinu þar sem 8.-10.bekkur sýndu flott takta á leiksviðinu. Nemendur úr 9.bekk fluttu hið árlega kennaragrín og 10.bekkingar sýndu atriði úr söngleiknum Með allt á hreinu sem verður fluttur í mars. Foreldrum var síðan boðið í kaffi í boði skólans og arkað var í matsalinn og haldið frábært jólaball fyrir unglingadeildina þar sem dansað var í kringum jólatréð og allir héldu heim glaðir í jólafrí.

Hérna eru nokkrar myndir frá jólaballinu


Víðistaðaskóli | Víðistaðatún Hrauntunga 7, 220 Hafnarfjörður
Sími 595 - 5800 | Netfang vidistadaskoli@vidistadaskoli.is