Heimili og skóli - Samvinna barnanna vegna

12.4.2023

Mánudaginn 17. apríl kl. 19:45-21:00 verður fræðslufundur fyrir foreldra og forsjáraðila með Heimili og skóla.

Hvernig get ég sem foreldri lagt mitt að mörkum til að auka vellíðan barnsins míns og skiptir samvinna foreldra máli þegar kemur að farsæld barnanna okkar?
Samheldni og samstarf foreldra hefur jákvæð áhrif á velferð barna; skólabrag og líðan nemenda, foreldra og kennara, svo ekki sé minnst á árangur í leik og námi.

Fundurinn verður textaður á ensku á staðnum og í streymi.
Við hvetjum alla til að mæta á fundinn.
Mikilvægt er að skrá sig ef horfa á í streymi: https://forms.gle/z6nzSW1q5W5a8wh56

Hvatningarmyndband sem gott og gaman er að skoða

Foreldrafundur-Heimilis-og-skola-hafnarfjordur_islenskaHeimili-og-skoli-hafnarfjordur_enska


Víðistaðaskóli | Víðistaðatún Hrauntunga 7, 220 Hafnarfjörður
Sími 595 - 5800 | Netfang vidistadaskoli@vidistadaskoli.is