Göngum í skólann

8.9.2022

Miðvikudaginn 7. september hófst verkefnið Göngum í skólann 2022 og stendur það yfir til 5.október sem er alþjóðlegur Göngum í skólann dagur. Víðistaðaskóli er skráður til þátttöku. Hugmyndin er að vera með ýmsar uppákomur þann mánuð sem Göngum í skólann stendur yfir, einnig hvetjum við ykkur kæru foreldrar/forráðamenn til þess að nýta ykkur verkefnið og þá umræðu sem skapast þennan mánuðinn til þess að ræða þessi mál við börnin ykkar og fara öruggustu leiðina í skólann með yngstu börnunum.

Meginmarkmið Göngum í skólann er að hvetja nemendur og foreldra á Íslandi til að ganga, hjóla eða nota annan virkan ferðamáta til og frá skóla, hvetja til aukinnar hreyfingar og fræða börn um ávinning reglulegrar hreyfingar. Með þessu er ætlunin að hvetja til heilbrigðs lífsstíls fyrir alla fjölskylduna en hreyfing vinnur m.a. gegn lífstílstengdum sjúkdómum, stuðlar að streitulosun og betri sjálfsmynd. Einnig er markmiðið að auka færni barna til að ganga á öruggan hátt í skólann og kenna reglur um öryggi á göngu og á hjóli. Þar að auki er markmiðið að draga úr umferð við skóla og stuðla að betra og hreinna lofti ásamt öruggari og friðsælli götum og hverfi. Um leið er verið að stuðla að vitundarvakningu um ferðamáta og umhverfismál: Hversu ,,gönguvænt“ umhverfið er og hvar úrbóta er þörf.


Víðistaðaskóli | Víðistaðatún Hrauntunga 7, 220 Hafnarfjörður
Sími 595 - 5800 | Netfang vidistadaskoli@vidistadaskoli.is