Grænfáninn

Víðistaðaskóli er þátttakandi í verkefni Landverndar, sem kallast Skólar á grænni grein og fær þess vegna að flagga Grænfánanum. Skólinn hefur fengið fánann fjórum sinnum, nú síðast á 50 ára afmæli skólans, þann 16. september.

Til þess að fá að starfa sem viðurkenndur Grænfánaskóli þarf að uppfylla ákveðin skilyrði. Það þarf að sækja um endurnýjun Grænfánans á tveggja ára fresti.

Markmið skóla á Grænni grein eru að:

  • Bæta umhverfi skólans.
  • Minnka úrgang og notkun á vatni og orku.
  • Efla samfélagskennd innan skólans.
  • Auka umhverfisvitund með menntun og verkefnum innan kennslustofu og utan.
  • Styrkja lýðræðisleg vinnubrögð við stjórnun skólans þegar teknar eru ákvarðanir sem varða nemendur.
  • Veita nemendum menntun og færni til að takast á við umhverfismál.

Hér er tengill inn á heimasíðuna hjá Landvernd þar sem nánar er hægt að lesa meira um Grænfánann eða verkefnið Skólar á grænni grein: Skólar á grænni grein

Hreinsun á lóð:

Til þess að tryggja það að skólalóðin okkar sé hrein og laus við rusl, allt árið um kring ber hver árgangur skólans ábyrgð á einum ákveðnum mánuði:

Til að hafa skipulagið eins einfalt og hægt er, þá sér hver árgangur um þann mánuð sem ber sama tölustaf:

  • 1. bekkur sér um að hreinsa lóðina 1. mánuð ársins sem er janúar.
  • 2. bekkur - febrúar
  • 3. bekkur - mars
  • 4. bekkur - apríl
  • 5. bekkur - maí
  • 6. bekkur - júní
  • 8. bekkur - ágúst
  • 9. bekkur - september
  • 10. bekkur – október

Nemendur, foreldra, kennarar og allir sem koma að skólasamfélaginu eru hvattir til að:

  • Flokka – endurvinna og endurnýta.
  • Kaupa ekki meira af fötum og hlutum en þörf krefur.
  • Kaupa notuð föt og hluti frekar en ný.
  • Sóa ekki mat.
  • Nota eins lítið plast og mögulegt er.


Víðistaðaskóli | Víðistaðatún Hrauntunga 7, 220 Hafnarfjörður
Sími 595 - 5800 | Netfang vidistadaskoli@vidistadaskoli.is