Opnunarhátíð félagsmiðstöðvarinnar Hraunsins

6.9.2016

Hraunid---utimyndFélagsmiðstöðin Hraunið verður opnuð með pompi og prakt á morgun miðvikudag 7. september kl 17:00 og verður húsið opið til kl. 19:00. Öllum er boðið að kíkja við. “Við erum opna eftir miklar endurbætur á húsnæðinu og verður ýmislegt skemmtilegt um að vera” segir Þórunn Þórarinsdóttir verkefnisstjóri í Hrauninu. “Krakkarnir ætla að vera með fjáröflun þar sem þau eru að safna fyrir nýju sjónvarpi! Þau munu selja grillaðar pylsur, svala,  kökur og kaffi svo eitthvað sé nefnt” segir Þórunn. “Einnig verður flóamarkaður sem nemendafélagið sér um. Við hlökkum til að sjá alla, foreldra, systkini og jafnvel ömmur og afa á morgun miðvikudag í portinu fyrir framan Hraunið” segir Þórunn að lokum. 

-/sir


Víðistaðaskóli | Víðistaðatún Hrauntunga 7, 220 Hafnarfjörður
Sími 595 - 5800 | Netfang vidistadaskoli@vidistadaskoli.is