Grænfáninn

20.5.2016

Í vikunni kom fulltrúi Landverndar, Katrín Magnúsdóttir, til okkar í heimsókn og hélt fund með fulltrúum skólans í umhverfisteyminu. Tilefnið var umsókn starfstöðvarinnar við Víðistaðatún um endurnýjun á Grænfánanum. Nemendur gerðu grein fyrir starfi teymisins síðastliðinn vetur og tóku virkan þátt í umræðum.  Margar góðar tillögur komu frá þeim varðandi næsta vetur og umhverfisteymið fer yfir og kynnir nánar í upphafi næsta skólaárs.

Myndir


Víðistaðaskóli | Víðistaðatún Hrauntunga 7, 220 Hafnarfjörður
Sími 595 - 5800 | Netfang vidistadaskoli@vidistadaskoli.is