Vinningshafar í SMT skólafærnileiknum

28.4.2016

Dagana 4.-15. apríl var SMT skólafærnileikurinn í gangi hjá okkur í Víðistaðaskóla. Leikurinn virkar eins og bingó, einhverjir eru verðlaunaðir við að fara eftir reglum á almennum svæðum í skólanum og fá þá miða sem hengdur er upp á plakat í anddyri skólans. Í lok leiksins er svo dregin út ein lína á spjaldinu og fá þeir sem eru í þeirri línu glaðning. Að þessu sinni fóru krakkarnir út að borða á Castello með stjórnendum skólans. Við óskum vinningshöfum innilega til hamingju með sigurinn. Hér meðfylgjandi má sjá mynd af vinningshöfum.


Víðistaðaskóli | Víðistaðatún Hrauntunga 7, 220 Hafnarfjörður
Sími 595 - 5800 | Netfang vidistadaskoli@vidistadaskoli.is