Umsjónarkennari á yngsta stigi Víðistaðaskóli
Víðistaðaskóli óskar eftir að ráða umsjónarkennara á yngsta stigi skólaárið 2022 - 2023.
Víðistaðaskóli var stofnaður árið 1970 og eru nemendur 490. Leiðarljós skólans eru Ábyrgð - Virðing - Vinátta. Í Víðistaðaskóla fögnum við fjölbreytileikanum og áhersla er lögð á að hver nemandi fái kennslu við hæfi til að þroska hæfileika sína. Lögð er áhersla á góðan námsárangur, vellíðan nemenda og starfsmanna. Unnið er að þróun teymiskennslu og fjölbreyttra kennsluhátta. Skólinn er heilsueflandi grunnskóli og grænfánaskóli þar sem lögð er áhersla á umhverfismennt og útikennslu. Skólinn vinnur í anda SMT skólafærni. Í skólanum er metnaðarfullt starf sem byggir á skólaþróun og nemendalýðræði. Í Víðistaðaskóla er góður starfsandi og jákvæð samskipti meðal allra sem í skólanum starfa.
Helstu verkefni:
· Annast almenna kennslu á yngsta stigi
· Vinnur að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
· Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og fagaðila
· Vinnur samkvæmt stefnu skólans
Hæfniskröfur:
· Leyfisbréf til kennslu
· Haldgóð þekking á kennslufræði námsgreina á yngsta stigi
· Áhugi á að starfa með börnum og ungmennum.
· Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni.
· Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
· Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
· Stundvísi og samviskusemi
· Mjög góð íslenskukunnátta
Nánari upplýsingar um starfið veitir Hrönn Bergþórsdóttir, skólastjóri, í síma 6645890, hronn@vidistadaskoli.is eða Valgerður Júlíusdóttir, aðstoðarskólastjóri, í síma 6645891, valaj@vidistadaskoli.is
Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni http://www.vidistadaskoli.is
Umsóknarfrestur er til og með 8. apríl 2022. Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2022.
Greinargóð ferilsskrá og leyfisbréf fylgi umsókn. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.