Sérkennari á yngsta- og miðstigi Engidalsskóli
Engidalsskóli óskar eftir að ráða sérkennara á yngsta- og miðstigi skólaárið 2020 - 2021.
Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2020.
Engidalsskóli var stofnaður árið 1979 og eru nemendur um 190. Leiðarljós skólans eru Ábyrgð - Virðing - Vinátta. Í Engidalsskóla fögnum við fjölbreytileikanum og áhersla er lögð á að hver nemandi fái kennslu við hæfi til að þroska hæfileika sína. Lögð er áhersla á góðan námsárangur, vellíðan nemenda og starfsmanna. Unnið er að þróun teymiskennslu og fjölbreyttra kennsluhátta. Skólinn er heilsueflandi grunnskóli og grænfánaskóli þar sem lögð er áhersla á umhverfismennt og útikennslu. Skólinn vinnur í anda SMT skólafærni. Í skólanum er metnaðarfullt starf sem byggir á skólaþróun og nemendalýðræði. Í Engidalsskóla er góður starfsandi og jákvæð samskipti meðal allra sem í skólanum starfa.
Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni http://www.vidistadaskoli.is
Helstu verkefni og ábyrgð:
· Annast sérkennslu á yngsta- og miðstigi
· Vinnur að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
· Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og fagaðila
· Vinnur samkvæmt stefnu skólans
Menntunar- og hæfniskröfur:
· Leyfisbréf til kennslu (Leyfisbréf fylgi umsókn)
· Haldgóð þekking á sérkennslufræði á yngsta- og miðstigi
· Áhugi á að starfa með börnum og ungmennum.
· Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni.
· Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
· Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
· Stundvísi og samviskusemi
· Mjög góð íslenskukunnátta
Nánari upplýsingar um starfið veitir Hrönn Bergþórsdóttir, skólastjóri, í síma 664-5890, hronn@vidistadaskoli.is eða Gyða Kristmannsdóttir, aðstoðarskólastjóri, í síma 664-5892, gyda@vidistadaskoli.is
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.
Umsóknarfrestur er til og með 13. apríl 2020.
Greinargóð ferilsskrá og leyfisbréf fylgi umsókn.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.