Öryggismyndavélar við og í Víðistaðaskóla

15.4.2021

Viðbætur við stafrænar öryggismyndavélar eru nú uppsettar eða í uppsetningu í skólanum. Um er að ræða öryggismyndavélar sem eru staðsettar við innganga og anddyri skólans. Í því felst rafræn vöktun innan skólabyggingarinnar sem er gert í þágu öryggis og í þeim tilgangi að varna því að eigur séu þar skemmdar eða þeim stolið.

Merkingar með viðvörunum um rafræna vöktun hafa þegar verið uppsettar á hinum vöktuðu svæðum.

Vöktunin er útfærð í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga.

Til kynningar og nánari fræðslu varðandi eftirlitið sem hér um ræðir skal bent á reglur Hafnarfjarðarkaupstaðar um rafræna vöktun öryggismyndavéla sem taka til þessarar vöktunar:

  • Reglur Hafnarfjarðarkaupstaðar um rafræna vöktun öryggismyndavéla.

Einnig er bent á að almennar upplýsingar um rafræna vöktun ásamt leiðbeiningum er að finna í bæklingi á vef persónuverndar þar sem hægt er að fá frekari upplýsingar um viðfangsefnið:

   • Leiðbeiningar Persónuverndar um rafræna vöktun.

Efni þetta er einnig kynnt á vef skólans.

Þetta upplýsist hér með.
Með kærri kveðju,
Hrönn Bergþórsdóttir, skólastjóri Víðistaðaskóla


Víðistaðaskóli | Víðistaðatún Hrauntunga 7, 220 Hafnarfjörður
Sími 595 - 5800 | Netfang vidistadaskoli@vidistadaskoli.is