Frekari sóttvarnaáherslur frá 7. október frá skrifstofu mennta- og lýðheilsusviðs Hafnarfjarðar
Eftirfarandi ákvarðanir og
aðgerðir eru teknar fyrir grunnskóla Hafnarfjarðar í ljósi hertra
samkomutakmarkana:
1. Sundkennsla
Engin sundkennsla verður í grunnskólum Hafnarfjarðar frá og með deginum í dag
til 19. október.
Nemendur fá kennslu sem samsvarar sundtímum á meðan þessu varir eins og skólar
ákveða.
2. Íþróttakennsla
Engin íþróttakennsla í fer fram í íþróttahúsum skólanna/bæjarins frá og með
deginum í dag til 19. október.
Gert er ráð fyrir að íþróttakennsla fari fram utanhúss á skólalóðum og í
nágrenni skóla á meðan eftir því sem tök eru á.
3. Vettvangsferðir, m.a. í skólabúðir
Ekki er heimilt að fara í vettvangsferðir út fyrir höfuðborgarsvæðið. Það á
einnig við ferðir hafnfirskra
grunnskóla í skólabúðir sem falla niður næstu tvær vikurnar ef þær eru á
döfinni.
4. Sóttkví er sambærilegt við veikindaleyfi
Sömu reglur gilda um sóttkví og veikindaleyfi, þ.e. engar sérstakar reglur
gilda um sóttkví umfram almenn veikindi eins og staðan er,
þ.e. nemenda er að fylgja námsáætlunum síns bekkjar og sækja nauðsynlegar
upplýsingar sem miðlað er af skóla til heimila.
5. Leyfi vegna sóttkvíar
Fara skal eftir reglum um skólasókn fyrir grunnskóla Hafnarfjarðar skólaárið
2020-2021, m.a. um skriflegar leyfistilkynningar.
6. Starfsemi í frístundaheimilum
Vegna breytinga á íþróttastarfsemi fyrir börn þarf að gera ráð fyrir að börn
séu skráð lengur fram á daginn í frístundaheimilum f
ram til 19. október sökum þess að æfingar íþróttafélaga falla niður.
Með bestu kveðju,
Valgerður Júlíusdóttir, aðstoðarskólastjóri