Deildarstjóri á unglingastigi Víðistaðaskóli

31.3.2020

Víðistaðaskóli óskar eftir að ráða deildarstjóra á unglingastigi skólaárið 2020 - 2021.

Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2020.

Víðistaðaskóli var stofnaður árið 1970 og eru nemendur 530. Leiðarljós skólans eru Ábyrgð - Virðing - Vinátta. Í Víðistaðaskóla fögnum við fjölbreytileikanum og áhersla er lögð á að hver nemandi fái kennslu við hæfi til að þroska hæfileika sína. Lögð er áhersla á góðan námsárangur, vellíðan nemenda og starfsmanna. Unnið er að þróun teymiskennslu og fjölbreyttra kennsluhátta. Skólinn er heilsueflandi grunnskóli og grænfánaskóli þar sem lögð er áhersla á umhverfismennt og útikennslu. Skólinn vinnur í anda SMT skólafærni. Í skólanum er metnaðarfullt starf sem byggir á skólaþróun og nemendalýðræði. Í Víðistaðaskóla er góður starfsandi og jákvæð samskipti meðal allra sem í skólanum starfa.

Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni http://www.vidistadaskoli.is

Helstu verkefni og ábyrgð:

· Annast deildarstjórn á unglingastigi

· Vinnur að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk

· Er í forystu um mótun og framkvæmd faglegrar stefnu skólans innan ramma laga og í samræmi við aðalnámskrá grunnskóla og skólastefnu Hafnarfjarðarbæjar

· Vinnur að öflugu samstarfi innan skólasamfélagsins

· Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og fagaðila

· Vinnur samkvæmt stefnu skólans

Menntunar- og hæfniskröfur:

· Leyfisbréf til kennslu (Leyfisbréf fylgi umsókn)

  • Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar og/eða uppeldis- eða kennslufræði

Farsæl kennslu- og stjórnunarreynsla í grunnskóla æskileg

  • Leiðtogafærni og hæfni til að leiða framsækið skólastarf

· Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni

  • Skipulagshæfileikar og hæfni til að leiða verkefni
  • Reynsla af teymisvinnu kostur
  • Þekking og/eða reynsla af SMT-skólafærni æskileg

· Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.

· Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.

· Stundvísi og samviskusemi

  • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti

Nánari upplýsingar um starfið veitir Hrönn Bergþórsdóttir, skólastjóri, í síma 664-5890, hronn@vidistadaskoli.is eða Valgerður Júlíusdóttir, aðstoðarskólastjóri, í síma 664-5891, valaj@vidistadaskoli.is

Umsóknarfrestur er til og með 13. apríl 2020.

Umsókn fylgi greinargóð ferilsskrá, leyfisbréf til kennslu og greinargerð um framtíðarsýn umsækjanda á skólastarf og reynslu við stjórnun.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.


Víðistaðaskóli | Víðistaðatún Hrauntunga 7, 220 Hafnarfjörður
Sími 595 - 5800 | Netfang vidistadaskoli@vidistadaskoli.is