Appelsínugul viðvörun 7. febrúar 2023

6.2.2023

Appelsínugul viðvörun í fyrramálið
Veðurstofan hefur gefið út appelsínugula viðvörun fyrir höfuðborgarsvæðið þriðjudaginn 7. feb. kl. 06:00 - 08:00. Spáð er sunnan stormi eða roki og mikilli úrkomu 20-28 m/s. Hvassast verður í efri byggðum og við ströndina. Mikil úrkoma, slydda eða snjókoma. Veðrið gengur mjög hratt yfir en færð getur spillst á meðan á því stendur. Almenna reglan er sú að skóla- og frístundastarf fellur ekki niður nema það sé sérstaklega tilkynnt. Foreldrar meta sjálfir hvort þeir treysta börnum sínum til að ganga í og úr skóla, miðað við aldur og aðstæður. Á heimasíðu skólans má finna leiðbeiningar um viðbrögð vegna röskunar á skólastarfi og á heimasíðu SHS.


Víðistaðaskóli | Víðistaðatún Hrauntunga 7, 220 Hafnarfjörður
Sími 595 - 5800 | Netfang vidistadaskoli@vidistadaskoli.is