Alþjóðlegi netöryggisdagurinn
Í dag er alþjóðlegi netöryggisdagurinn. Af því tilefni kynnum við til leiks síðu sem Anna María Proppé og Vilborg Sveinsdóttir #UTHaf, settu saman og hefur að geyma upplýsingar og efni fyrir kennara og aðstandendur á einum stað. Vefsíðan heitir Netöryggi og er safnsíða fyrir upplýsingar sem mun verða í stöðugri þróun. Við hvetjum ykkur til að kíkja á síðuna. Einnig bendum við á nýja síðu hjá Hafnarfjarðarbæ - Netöryggi og vefnotkun grunnskólabarna.
Það eru mörg spennandi erindi í boði á netinu sem verður hægt að skoða næstu daga, m.a. hjá Saft.
Hér fyrir neðan eru tímasetningar hvenær erindin verða frumsýnd á Facebook síðu SAFT (https://www.facebook.com/saft.iceland). Öll erindin eru tekin upp fyrir fram þannig fólk getur horft á upptökurnar hvenær sem er en þau verða aðgengileg á Youtube síðu SAFT
Facebook viðburð Netöryggsdagsins má nálgast hér: https://fb.me/e/IUSG6siR
Dagskrá (Með fyrirvara um breytingar):
- 10:00 Nýtt kynningarmyndband frá UngSAFT (Ungmennaráði SAFT) frumsýnt.
- 11:00 Fjóla Þorvaldsdóttir, verkefnastjóri hjá skóla- og frístundasviði Reykjavíkur fjallar um netnotkun leikskólabarna
- 12:00 Teitur Skúlason lögfræðingur hjá skóla- og frístundasviði Reykjavíkur fjallar um persónuvernd í skólastarfi
- 13:00 Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir, skólastýra Jafnréttisskóla SFS, fjallar um foreldrabréf um nýja birtingamynd kynferðisofbeldis sem sent var út um daginn
- 14:00 Anna Elísa Hreiðarsdóttir, lektor í leikskólakennarafræðum HA, kynnir niðurstöður rannsóknar á netnotkun leikskólabarna
- 15:00 Þóra Jónsdóttir frá Barnaheillum fjallar um ábendingalínu Barnaheilla þar sem hægt er að tilkynna óviðeigandi og ólöglegt efni á netinu
- 16:00 Salvör Gissurardóttir, lektor við Menntavísindasviði HÍ fjallar um efni tengt Wikipedia út frá nauðsyn á áreiðanlegum upplýsingum, aðgengi að opnu menntaefni, myndum og efni án höfundarréttartakmarkana
- 17:00 Verkefnastjórar SAFT og Heimili og skóli kynna niðurstöður úr foreldra- og nemendakönnun um stafræna borgaravitund.