Tilmæli um viðbrögð foreldra / forráðamanna barna í skólum og frístundastarfi

Tilmæli um viðbrögð foreldra og forráðamanna. 

SHS hefur verið falið af sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu fylgjast með veðri og veðurspám og senda út tilkynningar ef á þarf að halda, eftir atvikum í samráði við lögreglu og fræðsluyfirvöld.

Ábyrgð foreldra / forráðamanna

Mikilvægt er að foreldrar og forráðamenn, hér eftir nefndir forsjáraðilar, fylgist vel með fréttum af veðri, veðurspám og öðrum tilmælum frá yfirvöldum sem gætu haft áhrif á skóla- og frístundastarf barna og bregðist við í samræmi við aðstæður hverju sinni. Veðurfar og aðstæður geta verið mismunandi eftir hverfum og breyst skjótt með ófyrirséðum hætti.

Mikilvægt er að fólk fari ekki af stað til skóla eða vinnu ef það treystir sér ekki eða er vanbúið til farar, t.d. ef bifreið er ekki búin til vetraraksturs.

Leiðbeiningar þessar eiga við „yngri börn“, það er börn yngri en 12 ára. Athugið að hér er aðeins um viðmið að ræða sem er háð mati forsjáraðila.

Skóla- og frístundastarf fellur ekki niður nema tilkynnt sé um það sérstaklega. Í upphafi skóladags getur tafist að fullmanna skóla og mega forsjáraðilar þá búast við því að starfsfólk leiti liðsinnis þeirra. Forsjáraðilar eru hvattir til að taka slíkum óskum vel.

Forsjáraðilar leggja ávallt sjálfir mat á það hvort fylgja þurfi barni í eða úr skóla vegna veðurs, óháð því hvort tilkynning hafi borist frá yfirvöldum. Meti forsjáraðilar aðstæður svo að ekki sé óhætt fyrir börn þeirra að sækja skóla skulu þeir tilkynna skólanum um það sem lítur þá á tilvikið sem eðlilega fjarvist. Sama gildir ef börn eða forsjáraðilar lenda í vandræðum á leið sinni til skóla og verða frá að hverfa.

Hvernig á að bregðast við veðurviðvörun frá Veðurstofu Íslands?

Upplýsingar um hvernig forsjáraðilar bregðast við veðurviðvörunum frá Veðurstofu Íslands eru að finna í eftirfarandi leiðbeiningum:


Víðistaðaskóli | Víðistaðatún Hrauntunga 7, 220 Hafnarfjörður
Sími 595 - 5800 | Netfang vidistadaskoli@vidistadaskoli.is