Umsjónarkennari á unglingastigi Víðistaðaskóli
Víðistaðaskóli óskar eftir að ráða umsjónarkennara á unglingastigi skólaárið 2020 - 2021.
Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2020.
Víðistaðaskóli var stofnaður árið 1970 og eru nemendur 530. Leiðarljós skólans eru Ábyrgð - Virðing - Vinátta. Í Víðistaðaskóla fögnum við fjölbreytileikanum og áhersla er lögð á að hver nemandi fái kennslu við hæfi til að þroska hæfileika sína. Lögð er áhersla á góðan námsárangur, vellíðan nemenda og starfsmanna. Unnið er að þróun teymiskennslu og fjölbreyttra kennsluhátta. Skólinn er heilsueflandi grunnskóli og grænfánaskóli þar sem lögð er áhersla á umhverfismennt og útikennslu. Skólinn vinnur í anda SMT skólafærni. Í skólanum er metnaðarfullt starf sem byggir á skólaþróun og nemendalýðræði. Í Víðistaðaskóla er góður starfsandi og jákvæð samskipti meðal allra sem í skólanum starfa.
Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni http://www.vidistadaskoli.is
Helstu verkefni og ábyrgð:
· Annast almenna kennslu á unglingastigi
· Vinnur að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
· Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og fagaðila
· Vinnur samkvæmt stefnu skólans
Menntunar- og hæfniskröfur:
· Leyfisbréf til kennslu (Leyfisbréf fylgi umsókn)
· Haldgóð þekking á kennslufræði námsgreina á unglingastigi
· Áhugi á að starfa með börnum og ungmennum.
· Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni.
· Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
· Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
· Stundvísi og samviskusemi
· Mjög góð íslenskukunnátta
Nánari upplýsingar um starfið veitir Hrönn Bergþórsdóttir, skólastjóri, í síma 6645890, hronn@vidistadaskoli.is eða Valgerður Júlíusdóttir, aðstoðarskólastjóri, í síma 6645891, valaj@vidistadaskoli.is
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.
Umsóknarfrestur er til og með 13. apríl 2020.
Greinargóð ferilsskrá og leyfisbréf fylgi umsókn.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.