Spurningalið Víðstaðaskóla á mikilli siglingu

30.3.2017

Spurningakeppni grunnskólanna í Hafnarfirði stendur nú sem hæst og hefur lið Víðistaðaskóla staðið sig frábærlega vel. Þeir hafa farið með sigur af hólmi í þeim tveimur viðureignum sem búnar eru með nokkrum yfirburðum. Nú í vikunni sigraði spurningalið Víðistaðaskóla, grunnskólann NÚ, en það er nýr skóli við Flatahraun í Hafnarfirði. Viðureigninni lauk með 17 stiga sigri Víðistaðaskóla en lokatölur urðu 30 stig gegn 13. Á myndinni má sjá þá þremmenninga sem skipa lið Víðistaðaskóla, en það eru þeir Danival Ísak, Jóhannesi Árni og Sólmundur Örn.  

-/SIR

Spurningalid-Vidistadskola-V17


Víðistaðaskóli | Víðistaðatún Hrauntunga 7, 220 Hafnarfjörður
Sími 595 - 5800 | Netfang vidistadaskoli@vidistadaskoli.is