Skólabúðir að Laugum

1.11.2016

Vikuna 24.-28. október dvöldu nemendur í 9. bekk  að Laugum í Sælingsdal. Markmiðið með dvölinni er að styrkja félagsfærni unglinga, efla vitund þeirra fyrir umhverfi sínu og samfélagi ásamt mikilvægi þess að hafa heilbrigðan lifsstíl að leiðarljósi. Bæði kennarar og nemendur eru í skýjunum yfir ferðinni, hún var lærdómsrík og skemmtileg. Það var nýr og betri hópur sem lagði af stað heim á föstudeginum eftir vel heppnaða dvöl.


Víðistaðaskóli | Víðistaðatún Hrauntunga 7, 220 Hafnarfjörður
Sími 595 - 5800 | Netfang vidistadaskoli@vidistadaskoli.is