Breyting á skólareglum varðandi hlaupahjól.

21.8.2020

1. bekkur

Samkvæmt 40. grein umferðarlaga mega nemendur yngri en 7 ára ekki vera ein á reiðhjóli í umferðinni nema með leiðsögn og undir eftirliti aðila sem náð hefur 15 ára aldri. Vegna þessa mega nemendur í 1. bekk ekki ferðast á reiðhjóli til og frá skóla nema undir eftirliti fullorðins einstaklings.

Nemendur sem koma á hlaupahjóli í skólann læsa hjólum sínum á skólalóð. Merkja þarf hjólin. Hjólin má ekki nota á skólatíma. Nemendur bera sjálfir ábyrgð á hjólum sínum.

2. – 4. bekkur

Nemendum í þessum bekkjum er heimilt að hjóla í umferðinni samkvæmt umferðarlögum. Ef foreldrar kjósa að senda börnin sín í skólann á hjóli þá er það á þeirra ábyrgð. Reiðhjólum og hlaupahjólum skal leggja í hjólagrindur eða við grindverk og læsa. Hjólin má ekki nota á skólatíma. Nemendur bera sjálfir ábyrgð á hjólum sínum.

5. – 10. bekkur

Nemendum í þessum bekkjum er heimilt að koma á hjólum í skólann. Reiðhjólum og hlaupahjólum skal leggja í hjólagrindur eða við grindverk og læsa. Hjólin má ekki nota á skólatíma (á einnig við um frímínútur). Nemendum er þó heimilt að nota hjólin til að fara til og frá Sundhöllinni. Nemendur bera sjálfir ábyrgð á hjólum sínum.

Þessum bekkjum er einnig heimilt að koma á hjólabretti og línuskautum í skólann. Nemendum í 5. - 7. bekk er heimilt að nota hjólabrettin í frímínútum á haustin og vorin, eingöngu á brettasvæðinu fyrir framan Hraunið. Mikilvægt er að nemendur noti öryggisbúnað, svo sem hlífar og hjálma og eru foreldrar beðnir um að ganga eftir því við sín börn að fara eftir þeim tilmælum sjá reglurgerð um notkun á hlífðarhjálmum við hjólreiðar fyrir börn undir 15 ára aldri: https://www.samgongustofa.is/media/log-og-reglur-i-umferdarmalum/631_1999.pdf. Nemendur bera sjálfir ábyrgð á sínum búnaði.

Nemendum sem orðnir eru 13 ára er heimilt að koma á léttu bifhjóli í flokki 1 í skólann en verða að fylgja reglum sem gilda um notkun slíkra hjóla sjá:

www.samgongustofa.is/lettbifhjol


Víðistaðaskóli | Víðistaðatún Hrauntunga 7, 220 Hafnarfjörður
Sími 595 - 5800 | Netfang vidistadaskoli@vidistadaskoli.is