Páskabingó Foreldrafélags Víðistaðaskóla
Nú styttist í páska og eins og undanfarin ár mun foreldrafélagið halda sitt árlega páskabingó.
Gleðin tekur völdin og súkkulaðið mun flæða í matsal
Víðistaðaskóla þann 5. apríl kl. 17:30
Verði á bingóspjöldum verður að venju haldið í lágmarki.
Eitt spjald 300 kr
Tvö spjöld 500 kr
(ath hámark 2 spjöld á mann)
Ath að aðeins verður hægt að greiða með peningum.
Hlökkum til að sjá sem flesta nemendur og fjölskyldur þeirra.