4. bekkur í vorferð

31.5.2016

Miðvikudaginn 25. maí síðastliðinn fór 4. bekkur í Víðistaðaskóla austur á Úlfljótsvatn í Vorferð. Ferðin heppnaðist einstaklega vel. Margir nemendur stigu út fyrir þægindaramma sinn til dæmis með því að klifra upp hæsta klifurturn á Íslandi sem og að bleyta sig hressilega í vatnasafaríi. Nemendur voru alsælir með ferðina eins og ljósmyndir sýna. ( sjá myndir )


Víðistaðaskóli | Víðistaðatún Hrauntunga 7, 220 Hafnarfjörður
Sími 595 - 5800 | Netfang vidistadaskoli@vidistadaskoli.is