SMT - skólafærnileikurinn
Nú er SMT- skólafærnileikurinn okkar farinn af stað. Tilgangur leiksins er að hvetja nemendur enn frekar til að fara eftir SMT-skólareglunum. Nemendur leggja sig fram um að sýna fyrirmyndarhegðun á almennum svæðum skólans og við það skapast jákvætt andrúmsloft sem leiðir til betri aga.
Leikurinn gengur út á að 15 nemendur á dag (10 í starfsstöð Víðistaðatúns og 2 – 3 í Engidal) fá sérmerkta umbunarmiða sem starfsmenn skólans gefa á almennum svæðum þ.e. á göngum og í matsal. Miðunum geta nemendur skipt út fyrir númer á ákveðnu númeraspjaldi. Fyrirfram er búið að ákveða hvaða röð á spjaldinu vinnur og hvað er í vinning en það veit enginn nema skólastjóri. Að leik loknum er kunngert hvaða röð vinnur og hvað er í vinning.
Leikurinn vekur ávallt eftirvæntingu og ánægju hjá nemendum og er ekki ósvipaður bingói þar sem allir eru með en aðeins nokkrir vinna. Vinningurinn felst alltaf í því að þeir 15 einstaklingar sem vinna gera eitthvað saman með skólastjórnendum.