10.bekkingar með kaffisölu
Þriðjudaginn 2. febrúar er foreldradagur hér í skólanum. Eins og venja er verða nemendur í 10. bekk með kaffisölu og ágóðinn af henni rennur í ferðasjóð fyrir útskriftarferð 10. bekkinga í vor. Boðið verður upp á kaffi og meðlæti og skammturinn kostar 500 kr.