Vinningshafar í SMT skólafærnileiknum

13.4.2015

Dagana 16.-27.mars var SMT skólafærnileikurinn í gangi hjá okkur í Víðistaðaskóla. Leikurinn virkar eins og bingó, einhverjir eru verðlaunaðir við að fara eftir reglum á almennum svæðum í skólanum og fá þá miða sem hengdur er upp á plakat í anddyri skólans. Í lok leiksins er svo dregin út ein lína á spjaldinu og fá þeir sem eru í þeirri línu glaðning. Að þessu sinni fóru krakkarnir út að borða á American Style með stjórnendum skólans. Við óskum vinningshöfum innilega til hamingju með sigurinn. Hér meðfylgjandi má sjá mynd af vinningshöfum en á myndina vantar Kötlu Maríu 4.HÁ.

Víðistaðaskóli | Víðistaðatún Hrauntunga 7, 220 Hafnarfjörður
Sími 595 - 5800 | Netfang vidistadaskoli@vidistadaskoli.is