10. bekkur á alþingi
Nemendur úr 10. bekk fóru í heimsókn á Alþingi miðvikudaginn 22. janúar. Árganginum var skipt í tvo hópa og voru nemendur skólanum til sóma. Þeir kynntu sér störf alþingismanna og fengu að skoða húsakynni þingsins. Hér má sjá mynd af hópnum í þinghúsinu.