Jólaskemmtun yngri bekkja
Skólastarfinu á haustönn lauk í dag með jólaskemmtunum yngri bekkja skólans. Nemendur komu saman á sal og sungu jólasöngva undir stjórn Hrannar skólastjóra og Hönnu Bjargar tónmenntakennara og gengu kringum jólatré. Síðan héldu einstakir bekkir stofujól með umsjónarkennurum sínum.