Nemendafélagið stóð sig mjög vel
Vel heppnað og skemmtilegt nýnemaball 8.-10. bekkja var haldið í liðinni viku. "Þetta tókst mjög vel og nemendafélagið sem stóð að skipulagningu ballsins gerði það með stakri prýði" segir Þórunn Þórarinsdóttir verkefnastjóri í Hrauninu. Fjölmenni mætti og ekki annað að sjá en nemendur hafi skemmt sér með miklum ágætum segir Þórunn.
Einar Örn og Yrja sáu um tónlistina á dansgólfinu og eins og sjá má á myndunum var glatt á hjalla á þessu fyrsta balli vetrarins.
-/sir