Með allt á hreinu - glæsilegur söngleikur 10. bekkinga

30.3.2017

Stífar æfingar hafa staðið yfir síðustu vikur hjá 10. bekkingum í tengslum við söngleikinn „Með allt á hreinu“ en frumsýning verður annað kvöld, föstudagskvöld 31. mars kl. 19:30.
Óhætt er að segja að mikil vinna hafi verið hjá nemendum við að setja upp þennan vinsæla söngleik, en allir 10. bekkingar hafa sitt hlutverk svo allt gangi upp. Sumir eru leikarar í söngleiknum, aðrir sjá um kynningar og þeir þriðju sjá um veitingasöluna þeir fimmtu um miðasöluna og svona mætti lengi telja.
Frumsýning verður eins og fyrr segir á morgun föstudag, 31. mars, kl. 19:30. Önnur og þriðja sýning verða á laugardeginum 1. apríl kl. 14 og kl. 17 og fjórða og fimmta sýning sunnudaginn 2. apríl kl. 14 og 17. Eru allir hvattir til að verða sér út um miða í tíma en miðasala hefur gengið vel. Panta má miða í gegnum netfangið hraunid@hafnarfjordur.is. Verð á miða fyrir fullorðna er 1500 kr. og 500 kr. fyrir börn.

-/SIR

DSC05934DSC05970DSC05969

DSC06113  DSC06112DSC06111


Víðistaðaskóli | Víðistaðatún Hrauntunga 7, 220 Hafnarfjörður
Sími 595 - 5800 | Netfang vidistadaskoli@vidistadaskoli.is