Leikjanámskeið sumarið 2018

Íþrótta- og leikjanámskeið fyrir 7-9 ára.

16.5.2018

Í sumar eru íþrótta- og leikjanámskeið starfrækt í frístundaheimilum í Hafnarfirði. Á þeim er farið í fjölbreyttar íþróttir og leiki, göngu- og hjólaferðir og margt fleira. Frístundaheimili Víðistaðaskóla; Álfakot og Hraunkot, sameinast í einu leikjanámskeiði sem verður staðsett í Álfakoti í sumar. 

Námskeiðin hefjast 11. júní og standa flest yfir til 6. júlí. 

Námskeiðin eru fyrir börn fædd 2011-2009 (7-9 ára) og standa frá kl. 9.00-12.00 og kl. 13.0016.00, ókeypis gæsla er á milli kl. 8.00-9.00, 12.00-13.00 og 16.00-17.00. 

Verð: Þátttökugjaldi er stillt í hóf. Veittur er 50% systkinaafsláttur. Minnst er hægt að greiða fyrir viku í senn. 
Hver vika, hálfur dagur (frá kl. 9:00 – 12:00 eða 13:00 – 16:00): 4.450 kr.
Hver vika, allur dagurinn (frá kl. 9:00 – 16:00): 8.900 kr. 

Börnin koma með hádegismat að heiman og nesti fyrir morgun- og síðdegishressingu. 

Frá 9.-27. júlí verður íþrótta- og leikjanámskeið í Íþróttahúsinu í Setbergsskóla Frá 7. til 21. ágúst verða íþrótta- og leikjanámskeið á tveimur stöðum.
1) Í Hraunvallaskóla sem sér um Hvaleyrarskóla og Áslandsskóla.
2) í Lækjarskóla í íþróttahúsinu sem sér um Öldutúnsskóla, Setbergsskóla og Víðistaðaskóla. 

Skráning fer fram í gegnum „Mínar síður“ á www.hafnarfjordur.is - skráning á sumarnámskeið 2018. Það opnar 19. apríl fyrir skráningu. Skráning á leikjanámskeið þarf að fara fram fyrir miðnætti á fimmtudögum eigi barn að byrja á mánudeginum á eftir. 

Á mínum síðum er hægt að greiða með kreditkorti og debetkorti en hægt er að staðgreiða skráningu í Þjónustuveri Hafnarfjarðabæjar, Strandgötu 6. 

Nánari upplýsingar um skráningu eru í síma þjónustuvers 585-5500 

Leikjanamskeidengidal_vika1Leikjanamskeidengidal_vika2Leikjanamskeidengidal_vika3Leikjanamskeidengidal_vika4


Víðistaðaskóli | Víðistaðatún Hrauntunga 7, 220 Hafnarfjörður
Sími 595 - 5800 | Netfang vidistadaskoli@vidistadaskoli.is