Laus störf við Víðistaðaskóla
Frístundaleiðbeinandi - Álfakot í Engidal
Víðistaðaskóli óskar eftir að ráða frístundaleiðbeinanda með fjölbreytta hæfileika og áhuga á að vinna með börnum í hlutastörf á frístundaheimilinu Álfakoti. Um er ræða 50% störf eða minna. Vinnutími er kl. 13-17 alla virka daga.
Hæfniskröfur:
Reynsla eða menntun sem nýtist í starfi æskileg
Áhugi á að vinna með börnum
Hæfni í mannlegum samskiptum
Frumkvæði og sjálfstæði
Um kaup og kjör fer samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Nánari upplýsingar veitir Gunnella Hólmarsdóttir verkefnastjóri Tómstundamiðstöðvar Víðistaðaskóla í síma 664-5784. Einnig má senda fyrirspurnir á gunnella@hafnarfjordur.is Umsóknarfrestur er til og með 20. desember nk.
Samkvæmt jafnréttisstefnu Hafnarfjarðar eru karlar jafnt sem konur hvattir til að sækja um starfið.
Skólaliði - Víðistaðaskóli
Víðistaðaskóli auglýsir eftir skólaliða frá áramótum
Víðistaðaskóli var stofnaður árið 1968. Skólinn er starfræktur á tveimur starfsstöðvum við Hraunbrún og í Engidal. Leiðarljós skólastarfsins eru Ábyrgð - Virðing - Vinátta sem birtist í öllu starfi skólans. Í skólanum er lögð áhersla á skóla án aðgreiningar og er nám einstaklingsmiðað þannig að hver nemandi fái námsefni og kennslu við hæfi til að þroska hæfileika sína. Lögð er áhersla á vellíðan nemenda og góðan námsárangur. Unnið er eftir SMT skólafærni. Skólinn hefur nýlega fengið grænfánann á báðum starfsstöðvum og er lögð áhersla á umhverfismennt og útikennslu. Í starfi skólans er lögð áhersla á nemendalýðræði. Í skólanum er metnaðarfullt starf með áherslu á skólaþróun og nýbreytni er varðar upplýsingatækni í skólastarfi.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Ganga- og frímínútnavarsla
- Starfa í matsal skólans í hádegi
- Aðstoða nemendur á ýmsan máta, huga að líðan og öryggi þeirra
- Önnur verkefni sem til falla
- Vinnur að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
- Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og fagfólk
- Vinnur samkvæmt stefnu skólans í SMT skólafærni sem ætlað er að skapa gott andrúmsloft í skólum og tryggja öryggi og velferð nemenda og starfsfólks
Hæfniskröfur:
- Mikill áhugi og metnaður til að starfa með börnum
- Uppbyggjandi í samskiptum, ríkur sveigjanleiki og mikil samstarfshæfni
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi og efla sterka liðsheild enn frekar
- Stundvísi og samviskusemi
Upplýsingar um starfið veitir Hrönn Bergþórsdóttir, skólastjóri í síma 6645890, hronn@vidistadaskoli.is
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Umsóknarfrestur er til og með 20. desember 2016.
Samkvæmt jafnréttisstefnu Hafnarfjarðar eru karlar jafnt sem konur hvattir til að sækja um starfið.