Jólaskemmtun í yngri deildum

20.12.2016

DSC_7451Í dag voru haldnar jólaskemmtanir í yngri bekkjum skólans. Við byrjuðum í Engidal og síðan var haldið áfram í Víðistaðaskóla. Jólasveinar og Grýla og Leppalúði komu í heimsókn, ,,Stefánarnir" okkar stýrðu jólasöng og dansað var kringum jólatré. Síðan fóru bekkirnir í heimastofur og héldu stofujól. Af þessum skemmtunum loknum héldu allir í jólafrí. 

Myndir

Víðistaðaskóli | Víðistaðatún Hrauntunga 7, 220 Hafnarfjörður
Sími 595 - 5800 | Netfang vidistadaskoli@vidistadaskoli.is