Helgileikurinn í Víðistaðakirkju

8.12.2016

Í dag fluttu nemendur í 5.bekk Helgileikinn í Víðistaðakirkju. Þetta er fastur liður í jólaundirbúningnum hjá okkur í Víðistaðaskóla. Gestir voru nemendur í yngri bekkjum  í Víðistaðaskóla og krakkar af leikskólunum í Norðurbænum og foreldrar nemenda.

Kór skipaður öllum nemendum í 4. bekk skólans, undir stjórn Stefáns Hauks Gylfasonar, aðstoðaði við flutninginn og Steinunn Guðmundsdóttir lék undir á píanó. Þegar flutningnum var lokið flutti séra Bragi J. Ingibergsson sóknarprestur stutt ávarp. 

Hér má sjá fleiri myndir
DSC_6504


Víðistaðaskóli | Víðistaðatún Hrauntunga 7, 220 Hafnarfjörður
Sími 595 - 5800 | Netfang vidistadaskoli@vidistadaskoli.is