Lausar stöður til umsóknar - Frístundaleiðbeinandi
Víðistaðaskóli auglýsir eftir frístundaleiðbeinendum í störf á frístundaheimilin Álfakot og Hraunkot.
Umsókn fer fram hér:https://radningar.hafnarfjordur.is/recruitmentdmz/rcf3/ViewJobOnWeb.aspx?jobid=FRS17300
Frístundaleiðbeinandi - Víðistaðaskóli
Víðistaðaskóli auglýsir eftir frístundaleiðbeinendum í störf á frístundaheimilin Álfakot og Hraunkot.
Frístundaheimilið er fyrir nemendur í 1. - 4. bekk í Víðistaðaskóla. Þar gefst foreldrum kostur á að lengja viðveru barna sinna eftir að skólastarfi lýkur eftir þörfum hvers og eins. Um er ræða 20-50% störf. Vinnutími er alla virka daga kl. 13 - 17.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Vinna með börnum í 1. - 4. bekk að fjölbreyttum verkefnum í samráði við samstarfsfólk og stjórnendur
- Vinna að þróun frístundastarfs í samstarfi við samstarfsfólk og stjórnendur
- Stuðla að velferð og félagslegum þroska barnanna í samstarfi við foreldra, samstarfsfólk og annað fagfólk
- Vinna samkvæmt stefnu frístundaheimilisins og skólans
Hæfniskröfur:
- Reynsla eða menntun sem nýtist í starfi æskileg
- Áhugi á að vinna með börnum
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði og sjálfstæði
Um kaup og kjör fer samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Nánari upplýsingar veitir Kristjana Jokumsen deildarstjóri tómstundamiðstöðvar Víðistaðaskóla kristjanaj@vidistadaskoli.is eða í síma 664-5784
Umsóknarfrestur er til og með 28. september nk. Viðkomandi þarf að geta hafið störf strax.
Samkvæmt jafnréttisstefnu Hafnarfjarðar eru karlar jafnt sem konur hvött til að sækja um starfið.