Dagar í desember 2019

12.12.2019

Nú líður að jólum og undirbúningur farinn af stað í skólanum. Nemendur eru þessa dagana að
setja skólann í „jólafötin“ og skólinn orðinn jólalegur.
Vinabekkir hittast á sal föstudaginn 29. nóvember í Engidal og miðvikudaginn 4. desember
við Víðistaðatún og syngja inn aðventuna. Framundan er jóladagskrá með upplestri, samveru
og samsöng ásamt því að föndra eitthvað smávegis og búa til jólakort.


Föstudaginn 6. desember
Nemendur og starfsmenn mæta í einhverju jólalegu eða rauðu í skólann.
Aðventudagur fjölskyldunnar í 1.-4. bekk á báðum starfsstöðvum klukkan 12.00-13:10


Miðvikudaginn 11. desember
Jólabingó kl. 17:30. Stjórn nemendafélagsins heldur bingó fyrir alla nemendur skólans, sem
fjáröflun fyrir þá sem minna mega sín. Foreldrar/forsjáraðilar og systkini eru velkomin.


Fimmtudaginn 12. desember
Helgileikur.
Nemendur í 5. bekk flytja helgileikinn í kirkjunni fyrir nemendur í 1. – 7. bekk og skólahópa
úr leikskólunum í skólahverfinu okkar. Kór úr 4. bekk syngur.
5. Álfar flytur kl. 8.30
5. Tröll flytur kl. 9.15
5. VIP flytur kl. 10.00 Engidalur mætir
Foreldrar/forsjáraðilar eru velkomnir í kirkjuna.


Föstudaginn 13. desember
Jólamatur hjá Skólamat. Nemendum sem ekki eru í áskrift býðst að kaupa matarmiða á
600 krónur með peningum ekki kortum.


Fimmtudaginn 19. desember
Síðasti kennsludagur fyrir jól. Í unglingadeild verður kennt til kl. 12.10 en þá verða æfingar
og undirbúningur fyrir jólasýningu kvöldins og jólaballið.
Foreldra- og nemendasýning byrjar kl. 19.30 í íþróttahúsi skólans. Eftir sýningu verður boðið
upp á kaffi og gúmmelaði fyrir foreldra. Jólaball unglingadeildar stendur til kl. 22.00.


Föstudagurinn 20. desember
Stofujól og dansað í kringum jólatréð:
1. – 5. bekkur í Engidal frá 8.30 – 10.00
1. – 4.bekkur við Víðistaðatún frá 10.00 – 11.30
5. bekkur 11.00 – 12.30
6. bekkur 11.30 – 13.00
7. bekkur 12.00 – 13.30


Skóli hefst aftur samkvæmt stundaskrá föstudaginn 3. janúar 2020.


Með ósk um gleðileg jól,
skólastjóri og starfsfólk.

 

Desember jólabréf


Víðistaðaskóli | Víðistaðatún Hrauntunga 7, 220 Hafnarfjörður
Sími 595 - 5800 | Netfang vidistadaskoli@vidistadaskoli.is