Bókagjöf til skólans
Víðistaðastaðaskóli fékk nýlega afhenta veglega peningagjöf frá foreldrum nemenda sem útskrifuðust úr 10. bekk frá skólanum síðastliðið vor. Fyrir gjöfina voru keyptar bæði íslenskar og enskar skáldsögur til að bæta við safnkost bókasafnsins. Ákveðið var að leggja áherslu á bækur sem höfða til unglinga. Skólinn þakkar foreldrum fyrir þann hlýhug sem honum var sýndur með gjöfinni.