Bingó til styrktar Mæðrastyrksnefndar Hafnarfjarðar

16.12.2016

DSC05529Miðvikudaginn 14. desember hélt stjórn nemendafélags Víðistaðaskóla og starfsmenn félagsmiðstöðvarinnar Hraunsins hið árlega jóla-bingó til styrktar þeirra sem á þurfa að halda. Þetta árið vildu nemendur safna fyrir Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar.

Mörg fyrirtæki í bænum gáfu vinninga og skemmtu börnin sér mjög vel. Við erum þakklát öllum sem styrktu okkur og mættu á bingóið.

Samtals söfnuðust rúmlega 214.000 kr og tók Kristjana við peningunum fyrir hönd Mæðrastyrksnefnd.

Bestu kveðjur
Nemendur

 Fleiri myndir


Víðistaðaskóli | Víðistaðatún Hrauntunga 7, 220 Hafnarfjörður
Sími 595 - 5800 | Netfang vidistadaskoli@vidistadaskoli.is