2 - HS með samveru
Miðvikudaginn 14. desember var 2. HS með samveru. Nemendur höfðu æft fjölbreytt efni sem þeir sýndu fyrir samnemendur og foreldra, til dæmis lásu nokkrir nemendur jólasveinavísur Jóhannesar úr Kötlum. Í smiðjunum listir og sköpun höfðu nemendur unnið brúður og samið leikþátt sem þeir sýndu. Að lokum sungu allir nemendur Jólin jólin alls staðar og I'd like to teach the world to sing.