Teflt var í 2 flokkum með umhugsunartíma 7 mínútur í yngri flokk (1-7 bekk) og 10 mínútur í eldri flokk (8-10 bekk).
Skólaskákmeistarar Hafnarfjarðar 2012 voru í eldri flokk. Jón Hákon Richter 10. L í Öldutúnsskóla en hann fékk 5 vinninga af 5 mögulegum.
Í Yngri flokk varð síðan skólaskákmeistari Hafnarfjarðar Sóley Lind Pálsdóttir 7. SHS Hvaleyrarskóla, en hún endaði með 6,5 vinning af 7 mögulegum.
Sóley Lind er í stúlknalandsliði Íslands sem keppir á í Stavanger í Noregi nú um næstu helgi á Norðurlandamóti stúlkna.
Efstu sæti.
Eldri flokkur.
1. Jón Hákon Richter 10. L Öldutúnsskóla 5 v.
2. Gabríel Orri Duret 8. MS í Hvaleyrarskóla 4 v.
3. Markús Svavar Lubker 10. SV í Víðistaðaskóla 3 v.
Yngri flokkur.
1. Sóley Lind Pálsdóttir 7. SHS Hvaleyrarskóla 6,5 v.
2. Bjarni Þór Guðmundsson 5. bekk. Víðistaðaskóla 6 v.
3. Erik Jóhannesson 5. bekk. Víðistaðaskóla 5. v.
Það eru 2 efstu keppendur í hvorum flokki sem tryggja sér sæti á Kjördæmismóti Reykjaness sem haldið verður líklega seint í næstu viku. Það eru því Jón Hákon og Gabríel Orri auk Sóleyjar og Bjarna Þórs sem fara áfram á Kjördæmismót, þar sem keppt verður við börn frá Kópavogi, Kjósarsýslu (Garðabær, Mosfellsbær, Seltjarnarnes og Álftanes) og Suðurnes auk Hafnfirðinga um laus sæti á Landsmóti sem verður haldið fyrstu helgina í Maí í Stórutjarnarskóla á Norðurlandi Eystra.
Sjá má öll úrslit í báðum flokkum með því að smella hér.
Allar myndir frá mótinu má sjá á skak.is en með þessum pósti fylgja myndir af sigurvegurum.